„Með skjálfandi höndum sneri hann umslaginu við. Á bakhliðinni var purpuralitt innsigli með skjaldamerki: Ljón, örn, greifingi og snákur sem umluktu bókstafinn H." Harry Potter hafði aldrei heyrt um Hogwart þegar bréfin hófu að detta á dyramottuna á Runnaflöt númer 4. Þau eru skrifuð með grænu bleki á gulleitan pappír og með fjólubláu innsigli og gerð tafarlaust upptæk af hræðilegu frænku hans og frænda. En á ellefta afmælisdegi Harrys ryðst risi með glitrandi augu að nafni Rubeus Hagrid inn með undraverðar fréttir: Harry Potter er galdramaður og hefur fengið námsvist við Hogwart, skóla galdra og seiða. Ótrúleg ævintýri eru rétt í þann mund að hefjast! Þematónlist samin af James Hannigan.
Published by Pottermore
Fiction/Non-FictionFiction
Genre Fantasy
Target Audience Children
Released 18th October 2018
Duration 09 Hrs. 28 Mins.
ISBN 9781781108659
You already have this title on loan. You will find details of how to read your eBook here.
You already have this title on loan. You can download your eAudiobook here.